Velkomin!

27.mars 2020

Velkomin á síðu Norconsult Ísland!

Það er okkur sönn ánægja að auglýsa opnun vefsíðu Norconsult á Íslandi. Sem hluti af stærstu þverfaglegu verkfræðiráðgjöf í Noregi, bjóðum við upp á framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á fjölbreyttum sviðum framkvæmda með megin áherslu á rafmagnsflutning.

Eftir sameiningu við Norconsult árið 2017, höldum við áfram að veita víðsvegar um heiminn framúrskarandi ráðgjöf og hönnun sem endist. Við leggjum áherslu á að þróa og veita  sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini okkar, jafnhliða því að leitast alltaf til að betrumbæta viðfangsefnið.

Kjarnasvið okkar, hönnun háspennulína, raffræðileg greining flutningskerfa og greining-, og hönnun sjálfstýrisbúnaðar, samanstendur af reynslumiklum starfsmönnum og ungu hæfileikaríku starfsfólki sem hlakkar til að takast á við hin ýmsu verkefni sem leysa þarf á Norðurlöndum og víðar. Áralögn sérfræðiþekking starfsmanna okkar ásamt nýjungum sem fylgja ungu fólki, gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar hnitmiðaðar lausnir og ráðgjöf. Við leggjum áherslu á að vinna verkefnin í náinni samvinnu við viðskiptavini okkar með það fyrir augum að hámarka gæði og árangur.    

Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna undir liðnum “Um okkur”.